04.08.2009
Í dag hefjast hæfileikadómar kynbótahrossa klukkan 10:00 á 5. vetra hryssum. Því eru það Erlingur Erlingsson og Stakkavík frá
Feti sem ríða fyrst í braut fyrir Íslands hönd á þessu móti.
02.08.2009
Íslenska landsliðið átti æfingatíma á keppnisvöllunum í dag og nýttu flestir knaparnir sér þann tíma. Menn riðu
ýmist prógramm, fet nokkra hringi eða teymdu hestana á hjóli eftir skeiðbrautinni.
01.08.2009
Allir knapar íslenska landsliðsins ásamt hestum eru mættir á mótsstað í Brunnadern. Flestir knaparnir fóru á hrossin sín
í fyrsta skipti í dag og eru þeir ánægðir með hvernig hrossin koma undan flutningi.
31.07.2009
Skrifstofa LH verður lokuð þriðjudaginn 4. ágúst til og með föstudagsins 7.ágúst vegna sumarleyfa.
Kveðja starfsfólk LH
29.07.2009
Dagana 17. – 24. júlí sl. fóru fimm íslenskir unglingar á Youth Camp sem haldin var á Winterhorse Farm, Eagle USA, hjá þeim
sómahjónum Dan og Barbara Riva. Alls voru 31 þátttakandi frá 9 löndum FEIF.
28.07.2009
Seinni partinn í dag mættu landsliðsknaparnir með hesta sína út á Keflavíkurflugvöll til að koma þeim fyrir í gámunum
sem fara um borð í flugvélina er flytur þá til Liege í Belgíu.
25.07.2009
Í gærkvöld fór fram 100m skeið á Opna Gæðingamóti Sleipnis. Það var Viðar Ingólfsson á Hreim frá
Barkarstöðum sem bar sigur úr býtum. Þeir félagar fóru á tímanum 7,73.
25.07.2009
Nú í kvöld fóru fram úrslit í tölti á Opna Gæðingamóti Sleipnis. Það var Jón Páll Sveinsson á Losta
frá Strandarhjáleigu sem sigraði 1. flokk með einkunnina 8,00. Í unglingaflokki sigraði Kári Steinsson á Tóni frá Melkoti með
einkunnina 7,22.
25.07.2009
Opna Gæðingamót Sleipnis fer fram á Brávöllum nú um helgina. I gærkvöld var keppt í tölti og skeiði en í dag fór
fram forkeppni í öllum flokkum gæðingakeppninnar og úrslit í tölti.
24.07.2009
Þriðja tölublað af Hestar&Hestamenn er komið út. Blaðið er í dagblaðsformi. Í blaðinu eru fréttir og myndir frá FM2009,
Íslandsmóti og fleira.