18.07.2009
Úrslitin í tölti á Íslandsmótinu í hestaíþróttum voru sannkölluð veisla fyrir augað. Það var Viðar
Ingólfsson á Tuma frá Stóra-Hofi sem bar sigur úr býtum með einkunnina 9,00. Þeir félagar mættu feikna sterkir til leiks í
úrslitunum og fengu meðal annars 9,5 í einkunn fyrir hraðabreytingar.
18.07.2009
Það var Daníel Jónsson á Tón frá Ólafsbergi sem sigraði A-úrslit í fimmgangi á Íslandsmótinu í
hestaíþróttum. Þeir hlutu einkunnina 7,88.
18.07.2009
Úrslitum í fjórgangi á Íslandsmótinu í hestaíþróttum er nýlokið. Það var landsliðsknapinn Snorri Dal
á Oddi frá Hvolsvelli sem bar sigur úr býtum með einkunnina 8,17.
18.07.2009
Það er Sigurður Sigurðarson á Herði frá Eskiholti sem er nýkrýndur Íslandsmeistari í slaktaumatölti. Þeir hlutu einkunnina
8,21.
18.07.2009
Það var Sigurbjörn Bárðarson á Flosa frá Keldudal sem bar sigur úr býtum í 250m skeiði á Íslandsmótinu í
hestaíþróttum. Þeir félagar fóru á tímanum 23,52.
18.07.2009
Það var landsliðsknapinn Teitur Árnason á Veigari frá Varmalæk sem sigraði 150m skeiðið á Íslandsmótinu. Þeir
fór á tímanum 14,97 og er þetta annað árið í röð sem þeir félagar hampa titlinum.
18.07.2009
Það var Bjarni Jónasson á Kommu frá Garði sem sigraði B-úrslitin í tölti í morgun. Þau hlutu í aðaleinkunn 8,11.
18.07.2009
Það voru þeir Sigurður V Matthíasson á Birtingi frá Selá og Sigurður Sigurðarson á Æsu frá Flekkudal sem sigruðu
B-úrslitin í fimmgangi. Þeir voru hnífjafnir með einkunnina 7,21.
18.07.2009
Það var Lena Zielinski á Golu frá Þjórsárbakka sem sigraði B-úrslitin í fjórgangi í morgun. Lena hlaut 7,50 í
einkunn.
18.07.2009
Keppni í gæðingaskeiði fór fram í kvöld á Íslandsmótinu í hestaíþróttum. Sigurður Sigurðarson á
Freyði frá Hafsteinsstöðum bar sigur úr býtum með einkunnina 8,38.