28.05.2009
Einar Öder Magnússon landsliðseinvaldur og landsliðsnefnd LH boðaði til fundar um málefni landsliðsins síðastliðinn þriðjudag,
26.05.09, í Reiðhöll Fáks. Einar Öder greindi frá fyrirkomulagi úrtökunnar fyrir HM09 sem haldin verður á félagssvæði
Fáks 16.-18. júní.
28.05.2009
Minnum á næstu Skeiðleika Skeiðfélagsins en þeir verða haldnir miðvikudaginn 10. júní klukkan 20:00. Skráning verður
mánudaginn 8. júní og verður hún nánar auglýst þegar nær dregur.
28.05.2009
Fyrsta afkvæmi Álfs frá Selfossi kom í dóma á Sörlastöðum í gær. Það var hryssan Álfadrottning frá
Austurkoti, fjögra vetra. Hún er undan Snæfríði frá Þóreyjarnúpi, Skinfaxadóttur frá Þóreyjarnúpi.
28.05.2009
Krákur frá Blesastöðum kemur sterkur inn sem kynbótahestur. Alla vega ef fyrsta afkvæmi hans í dóm hefur slegið tón til
framtíðar. Það er fjögra vetra stóðhesturinn Mjölnir frá Hlemmiskeiði, undan Bliku frá Nýjabæ, Keilisdóttur frá
Miðsitju. Hann fékk 8,40 í aðaleinkunn.
28.05.2009
Tenór frá Túnsbergi fór yfir 9,0 múrinn fyrir hæfileika á Sörlastöðum í gær. Knapi var Erlingur Erlingsson. Meðaleinkunn
Tenórs er nú 9,03, en yfirlit er eftir og hann gæti því hækkað sig enn meir ef hann á góðan dag þá.
28.05.2009
Bændasamtök Íslands hafa fengið félagaskrá LH á tölvutæku formi afhenta úr FELIX félagatalinu. Bændasamtökin vinna
nú að því að lesa upplýsingar um alla félaga aðildarfélaga LH inn í WorldFeng.
27.05.2009
Nýr starfsmaður hefur tekið til starfa á skrifstofu LH, Þórdís Anna Gylfadóttir.
27.05.2009
Vatnagarpar undir forystu Hermanns Árnasonar sundriðu Skeiðará á dögunum. Myndir frá sundinu eru komnar í myndasafn. Smelltu á
"Ljósmyndir" hér til vinstri.
27.05.2009
Tólf hross eru komin með 8,20 og hærra í aðaleinkunn á kynbótasýningunni sem nú stendur yfir á Sörlastöðum í
Hafnarfirði. Þar af eru fimm frá Feti. Jónína frá Feti er með langhæstu einkunnina, 8,59.
27.05.2009
Íslandsmót í hestaíþróttum fyrir fullorðna verður haldið 16-18 júlí 2009 á Hlíðarholtsvelli á
Akureyri.
Framkvæmdaraðili mótsins er Hestamannafélagið Léttir.