04.06.2009
Álfasteinn frá Selfossi virðist ótvíræður kynbótahestur. Hann er átta vetra. Sjö afkvæmi hans hafa hlotið
kynbótadóm og þar ef eru fimm með fyrstu verðlaun. Tvö eru með 8,20 og hærra í aðaleinkunn, bæði frá Ketilsstöðum.
04.06.2009
Sjö afreksmenn hafa riðið afrekshestum sínum yfir mörg helztu jökulfljót landsins frá Hornafirði til Selfoss. Þeir sundriðu
ýmist eða fóru á vaði eins og Íslendingar gerðu til forna. Þá voru engar brýr og ferjur fáar. Sum jökulfljót voru
fjölfarin, svo sem Þjórsá við Árnes.
04.06.2009
Gæðingamót Sörla verður haldið dagana 4.- 6. júní að Sörlastöðum. Hér birtist dagskrá og
ráslistar mótsins sem hefst á morgun fimmtudag kl. 17.00 með keppni í barnaflokki.
04.06.2009
Íslandsmót í hestaíþróttum fyrir fullorðna verður haldið 16.-18. júlí 2009 á
Hlíðarholtsvelli á Akureyri. Framkvæmdaraðili mótsins er Hestamannafélagið Léttir.
04.06.2009
Það hefur heldur betur hlaupið á snærið hjá Magnúsi og Hólmfríði á Blesastöðum á kynbótasýningunni
á Gaddstaðaflötum. Eftir tvo fyrstu daga sýningarinnar eru fjórar hryssur í þeirra eigu komnar með fystu verðlaun.
04.06.2009
Gæðingamót Geysis verður haldið á Gaddstaðaflötum um næstu helgi. Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
03.06.2009
Útflutningsráð Íslands undirbýr nú þátttöku fyrirtækja á sölu- og sýningarsvæði heimsmeistaramóts
íslenska hestsins sem að þessu sinni verður haldið í Brunnadern, Sviss dagana 3.-9. ágúst nk. Um er ræða frábært
tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til að kynna sig og selja vörur sínar meðan á móti stendur.
03.06.2009
Svipmyndir frá kynbótasýningunni á Sörlastöðum 09 eru komnar í myndasafn. Smelltu á "Ljósmyndir" hér til vinstri á
síðunni og þar finnur þú myndasafnið. Góða skemmtun.
03.06.2009
Úrtakan vegna HM 2009 fer fram dagana 16. júní (fyrri hluti) og 18. júní (seinni hluti) á félagssvæði Fáks,
Víðidal.
03.06.2009
Töltkeppni í fullorðinsflokki á FM2009 verður opin 40 hæstu hestum landsins 2009, samkvæmt stöðulista í Sportfeng. Samkvæmt nýjasta
stöðulista er Sigurður Sigurðarson á Kjarnorku frá Kálfholti með hæsta skor. Ekki er búið að færa inn skor frá
Reykavíkurmeistaramóti.