10.06.2009
Sigríkur Jónsson á Syðri-Úlfsstöðum í Austur-Landeyjum ætlar að taka þátt í úrtöku fyrir HM2009 í
Sviss. Hann keppir á hestinum Zorró frá Grímsstöðum í Landeyjum, Orrasyni frá Þúfu.
10.06.2009
Sigurður Sigurðarson segir mjög líklegt að hann muni skrá Freyði frá Hafsteinsstöðum í gæðingaskeið á HM
úrtökunni sem fram fer 16. og 18. júní.
10.06.2009
Sigurbjörn Bárðarson verður ekki sjálfur með hest í úrtöku fyrir HM2009 í Sviss. Hann er þó ekki alveg búinn að segja
skilið við heimsmeistaramótin, því Sara dóttir hans mun taka þátt í úrtökunni í ungmennaflokki á töltaranum Nykur
frá Hítarnesi.
10.06.2009
Aðrir Skeiðleikar Skeiðfélagsins verða haldnir að Brávöllum, félagssvæði Sleipnis á Selfossi í kvöld klukkan 20:00.
09.06.2009
Sextíu kynbótahross hafa þegar náð lágmörkum inn á FM2009 á Kaldármelum. Fjörutíu og tvö eru með 8,0 og
hærra í meðaleinkunn fyrir sköpulag. Seiður frá Flugumýri 2 er með hæstu byggingareinkunnina og Bjarmi frá Lundum og Prinsessa frá
Birkihlíð með þá næst hæstu.
09.06.2009
Illingur frá Tóftum stimplaði sig rækilega inn í elsta flokk stóðhesta fyrir HM2009 í Sviss, á kynbótasýningu á
Gaddstaðaflötum í síðustu viku. Hann fékk 8,73 í aðaleinkunn og er nú þriðji hæst dæmdi íslenski stóðhestur
í heimi.
09.06.2009
Heimsmeistari 4 vetra stóðhesta frá því á LM2008, Seiður frá Flugumýri, hækkaði um 10 kommur í aðaleinkunn á
kynbótasýningu á Blönduósi. Hann hækkar fyrir sköpulag úr 8,48 í 8,57, og fyrir kosti úr 8,39 í 8,49.
08.06.2009
Miðvikudaginn 10. júní verða aðrir Skeiðleikar af fjórum sem Skeiðfélagið og stendur fyrir í ár. Verða þeir haldnir
að Brávöllum, félagssvæði Sleipnis á Selfossi og hefst keppni klukkan 20:00. Keppt verður í 100m, 150m og 250m skeiði. Við skráningu
þarf að gefa upp kennitölu knapa og ISnúmer hests.
08.06.2009
Ferðahandbókin Áfangar I og II bindi eru nú aðgengilegar á heimasíðu LH á pdf formi. Þar getur almenningur aflað sér
upplýsinga og fróðleik um hinar ýmsu reiðleiðir sem þar er að finna.
08.06.2009
Gæðingamót Harðar var haldið um helgina. Frábærir gæðingar og knapar léku listir sínar í blíðunni. Úrslit
urðu þessi: