12.06.2016
Skeiðfélagið Náttfari í samstarfi við Hestamannafélagið Hring ætla að bjóða uppá skeiðkeppni á Dalvík, þriðjudaginn 14. júni.
10.06.2016
Nú þegar aðeins 17 dagar eru þar til Landsmót hestamanna hefst á Hólum í Hjaltadal birtum við stöðuna eins og hún er í dag, 10.júní, á stöðulistum í tölti og skeiði.
08.06.2016
Stjórn LH og keppnisnefnd LH hafa eftir íhugun ákveðið að leyfa að sérstök forkeppni fari til reynslu fram upp á þá hönd sem knapar kjósa.
07.06.2016
Hjólreiðafélag Reykjavíkur (HFR) stendur fyrir einni stærstu fjallahjólakeppni Íslands Blue Lagoon Challenge næstkomandi laugardag 11. júní frá kl. 16 - 21. Til að forðast árekstra og slys á hestum og mönnum langar okkur að biðja ykkur að hafa það í huga að það eru 1000 þáttakendur skráðir í keppnina sem verða hjólandi á þessari leið 11. júní.
03.06.2016
Gunnar Gunnarsson aðstoðarvegamálastjóri lætur af störfum hjá Vegagerðinni nú í júní sökum aldurs. Síðasta áratuginn eða svo hefur Gunnar haldið utan um reiðvegamál fyrir Vegagerðina gagnvart hestamönnum.
02.06.2016
Úrtaka fyrir landsmót verður haldin sameiginlega fyrir hestamannafélögin Dreyra, Faxa, Glað, Skugga og Snæfelling, laugardaginn 11. júní og sunnudaginn 12. júní, næstkomandi, á félagssvæði Skugga, við Vindás í Borgarnesi.
30.05.2016
Sýningar ræktunarbúa skipa heiðurssess á landsmótum hestamanna og á LM2016 á Hólum verður engin breyting þar á. Stefnt er á að tilhögun sýninga verði með svipuðu sniði og verið hefur á undanförnum mótum, þ.e. að þátttaka verði bundin við 10 ræktunarbú.
27.05.2016
LH hefur undanfarið unnið að gerð og þýðingum gátlista vegna mótahalds í hestaíþróttum. Gátlistarnir eru tveir, annars vegar gátlisti þula sem kemur frá FEIF og hins vegar almennur gátlisti fyrir mótshaldara.
27.05.2016
Mannvirkjanefnd LH fundaði að Hólum í vikunni með fulltrúum frá Gullhyl, Hólaskóla og Sveitarfélaginu Skagafirði.
26.05.2016
Vormót Létts tókst alveg frábærlega vel og voru úrslitin mjög skemmtileg og spennandi. Oft var mjótt á munum og réðust úrslit ekki fyrr en eftir að síðustu tölur voru slegnar inn.