20.08.2008
Hulda Gústafsdóttir á Lokk frá Þorláksstöðum náði ekki að halda sæti sínu í B úrslitum í tölti fullorðinna á NM2008 og komast þar með í A úrslit.
20.08.2008
Hulda Gústafsdóttir á Lokk frá Þorláksstöðum náði ekki að halda sæti sínu í B úrslitum í tölti fullorðinna á NM2008 og komast þar með í A úrslit.
20.08.2008
Danir leggja mikið upp úr góðum félagsanda. Þeir fengu því til liðs við sig hátt metinn andlegan peppara\" (Mental coahc), Rasmus Bagger að nafni, sem meðal annars hefur þjálfað danska íþróttamenn í andlegri hressingu fyrir Ólympíuleika.
20.08.2008
Gabi Holgeman á Takti frå Örvik keppir í A úrslitum í fjórgangi fullorðinna á NM2008 í Seljord. Keppni í B úrslitunum var jöfn og spennandi og litlu munaði að Laura Midtgård á Herkules fra Pegasus velti Gabi úr sessi í fyrsta sætinu.
20.08.2008
Edda Hrund Hinriksdóttir var efst inn í B úrslit í fjórgangi ungmenna og hélt því sæti í úrslitunum. Mjótt var á munum milli þriggja efstu keppendanna.
20.08.2008
Íslenskir keppendur voru seigir í B úrslitum í morgun. Eyjólfur Þorsteinsson kláraði sig af fimmganginum með nokkrum yfirburðum. Þó voru skeiðsprettirnir ekki auðveldir fremur en í forkeppninni.
20.08.2008
Rafrænn tímatökubúnaður á NM2008 hefur ekki virkað sem skyldi. Það er ekki nýtt á Norðurlanda- og heimsmeistaramótum. Endurteknar bilanir í búnaðinum hafa sett strik í reikninginn. Ýmist er stuðst við rafræna klukku eða uppreiknaða handklukku.
20.08.2008
Guðmundur Einarsson á Sprota frá Sjávarborg er Norðurlandameistari í 250 m skeiði á NM2008. Sproti hljóp á 22,05 sekúndum í þriðja spretti, átti 22,15 frá því í gær.
20.08.2008
Tina Kalmo Pedersen á Hrefnu frá Ebru er efst í fjórgangi ungmenna á NM2008 eftir forkeppni. Hún keppir fyrir Noreg. Tina var síðasti keppandi inn á völlinn. Það var þó ekki það sem réði úrslitum. Hrefna er afar góð á grunngangtegundunum og Tina er góður reiðmaður, þótt hún sé ung að árum.
08.08.2008
Íslendingar hafa ekki roð af frændum sínum í fimmgangi á NM2008 í Seljord. Keppendur í A úrslitum eru skör hærri en kollegar þeirra á nýafstöðnu Íslandsmóti, bæði hvað varðar hestakost og reiðmennsku.