05.06.2009
Gæðingakeppni Sóta á Álftanesi verður haldin um helgina. Dagskrá og ráslistar eru eftirfarandi:
05.06.2009
Þriðja fyrstu verðlauna hrossið bættist í afkvæmahóp Kráks frá Blesastöðum á Gaddstaðaflötum í gær.
Það er 4 vetra hryssan Ronja frá Hlemmiskeiði 3, undan Kjarnorku frá Hlemmiskeiði 3, Hrafnsdóttur frá Holtsmúla.
05.06.2009
Miðvikudaginn 10. júní verða aðrir Skeiðleikar af fjórum sem Skeiðfélagið og stendur fyrir í ár. Verða þeir haldnir
að Brávöllum, félagssvæði Sleipnis á Selfossi og hefst keppni klukkan 20:00. Keppt verður í 100m, 150m og 250m skeiði. Við skráningu
þarf að gefa upp kennitölu knapa og ISnúmer hests.
05.06.2009
Skeiðhryssan og afrekshryssan Ester frá Hólum er til sölu, ásamt nokkrum öðrum hrossum Hólaskóla. Ester er moldótt, undan Asa frá
Brimnesi og Eldeyju frá Hólum.
04.06.2009
Vilmundur frá Feti ætlar ekki að bregðast vonum. Hann á aðeins ellefu afkvæmi á tamningar aldri. Öll fædd 2004. Sex þeirra hafa
hlotið kynbótadóm og þar af eru þrjú með fyrstu verðlaun.
04.06.2009
Álfasteinn frá Selfossi virðist ótvíræður kynbótahestur. Hann er átta vetra. Sjö afkvæmi hans hafa hlotið
kynbótadóm og þar ef eru fimm með fyrstu verðlaun. Tvö eru með 8,20 og hærra í aðaleinkunn, bæði frá Ketilsstöðum.
04.06.2009
Sjö afreksmenn hafa riðið afrekshestum sínum yfir mörg helztu jökulfljót landsins frá Hornafirði til Selfoss. Þeir sundriðu
ýmist eða fóru á vaði eins og Íslendingar gerðu til forna. Þá voru engar brýr og ferjur fáar. Sum jökulfljót voru
fjölfarin, svo sem Þjórsá við Árnes.
04.06.2009
Gæðingamót Sörla verður haldið dagana 4.- 6. júní að Sörlastöðum. Hér birtist dagskrá og
ráslistar mótsins sem hefst á morgun fimmtudag kl. 17.00 með keppni í barnaflokki.
04.06.2009
Íslandsmót í hestaíþróttum fyrir fullorðna verður haldið 16.-18. júlí 2009 á
Hlíðarholtsvelli á Akureyri. Framkvæmdaraðili mótsins er Hestamannafélagið Léttir.
04.06.2009
Það hefur heldur betur hlaupið á snærið hjá Magnúsi og Hólmfríði á Blesastöðum á kynbótasýningunni
á Gaddstaðaflötum. Eftir tvo fyrstu daga sýningarinnar eru fjórar hryssur í þeirra eigu komnar með fystu verðlaun.