20.03.2009
Á morgun laugardaginn 21. mars kl. 11:00 verður keppt í Rangárhöllinni í Smala og fjórgangi. Smalabrautin er nú tilbúin og gefst
keppendum kostur á að æfa í dag, en húsið verður opið til kl. 22:00 og frá kl. 8:00 á morgun til kl. 10:00.
Húsvörður Ragnárhallarinnar gefur upplýsingar um hvernig á að ríða Smalabrautina. Einnig hangir uppi teikning af brautinni. Eins og
áður er aðgangur ókeypis fyrir þá sem vilja sjá meistaradeildarknapa nútíðar og framtíðarinnar spreyta sig.
20.03.2009
Jakob Sigurðsson á stóðhestinum Auði frá Lundum bar höfuð og herðar yfir aðra keppendur í gæðingafimi Meistaradeildar VÍS
í gærkvöldi. Hann fékk 8,25 í einkunn en næsti keppandi fékk 7,73. Tíu knapar kepptu til úrslita. Var mál manna að
reiðmennska Jakobs hefði verið til fyrirmyndar. Hesturinn var léttur í taumum og sáttur, og geislaði af mýkt og fegurð.
19.03.2009
Á laugardaginn verður framhald á Meistaradeild UMFÍ í Rangárhöllinni á Hellu. Þá verður keppt í Smala og
fjórgangi og hefst keppni kl. 11:00. Eins og fyrr er ókeypis aðgangur og veitingasala á staðnum. Minnum keppendur að skila inn upplýsingum um
keppnishesta á netfangið ssaggu@itn.is strax.
19.03.2009
Bjarni Finnsson, formaður hestamannafélagsins Fáks, segir að það sé þverpólitísk samstaða í borgarstjórn
Reykjavíkur um að umrætt svæði verði notað undir hesthúsabyggð og byggingar fyrir hestatengda starfssemi. Þær stofnanir sem fjallað hafi
um málið á vegum borgarinnar hafa gefið út það álit að Elliðaánum og laxagengd í henni stafi ekki hætta af slíkri
byggð. Enda muni ekkert frárennsli frá þeim byggingum fara í árnar.
19.03.2009
Orri Vigfússon Forsvarsmaður Verndarsjóðs villtra laxa, NASF, vill fá fund sem fyrst með Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra vegna
fyrirhugaðrar hesthúsabyggðar í næsta nágrenni við Elliðaár í Víðidal. Verndarsjóðurinn segir hesthúsabyggð
með öllu óásættanlega og hafa í för með sér óafturkræfar afleiðingar.
19.03.2009
Hólasveinnin Árni Björn Pálsson (annar í rásröð) gaf fyrsta tóninn í fimmgangskeppni KS Meistaradeildar Norðurlands í
gærkvölti. Og það var enginn feiltónn, því honum varð ekki haggað úr fyrsta sætinu út keppnina. Bjarni jónasson vann sig
upp úr B úrslitum og hafnaði að lokum í 3. sætinu eftir að hlutkesti hafði verið varpað milli hans og Stefáns Friðgeirssonar.
19.03.2009
Keppt verður í gæðingafimi í Meistaradeild VÍS í Ölfushöllinni í kvöld. Gæðingafimin er af mörgum talin ein mesta
áskorun fyrir reiðmenn í keppni á íslenskum hestum. Þar eru sameinuð gildi klassískrar reiðmennsku, og þjóðlegrar
íslenskrar reiðmennsku. Nokkrir knapar hafa riðið afar fallegar og vel útfærðar sýningar í þessari keppnisgrein.
18.03.2009
Fyrsta upprifjunarnámskeið gæðingadómara verður haldið í kvöld, miðvikudag, í Íþróttamiðstöðinni í
Laugardal. Námskeiðið hefst klukkan 18.00. Allir gæðingadómarar fengu sendan DVD disk auk annarra upplýsinga fyrir nokkru síðan og ætlast er
til að menn komi undirbúnir til leiks. Námskeiðið kostar 5000 krónur, félagsgjald er 1500. Samtals 6500 krónur.
18.03.2009
Ístölt – Þeir allra sterkustu 2009, verður haldið í Skautahöllinni í Reykjavík laugardaginn 4. apríl. Mótið er haldið
til styrktar landsliði Íslands í hestaíþróttum. Úrval knapa og töltara mun taka þátt í keppninni. Átta
framúrskarandi stóðhestar verða sýndir.
17.03.2009
Það verða engar smá stjörnur sem munu etja kappi saman næst komandi fimmtudag í Ölfushöllinni þegar keppni í gæðingafimi
í Meistaradeild VÍS fer fram.