31.08.2021
Menntanefnd LH stendur fyrir rafrænni menntaráðstefnu í haust með heimsþekktum kennurum.
29.08.2021
Þolkappreið er einföld og auðskiljanleg íþrótt sem snýst um að ríða hesti ákveðna vegalengd á tíma og að hesturinn sé í góðu líkamlegu ástandi á endastöð. Þolkappreið er andleg þrautabraut fyrir sál og líkama. Knapar þurfa að vera vakandi yfir ástandi hestsins og hafa velferð hestsins ávallt að leiðarljósi.
29.07.2021
Mótinu Allra sterkustu á Íslandi sem halda átti dagana 5.-7. ágúst hefur verið aflýst. Þetta er gert í ljósi þess að víðtækt smit hefur komið upp á meðal knapa og starfsfólks á hestatengdum viðburðum, rétt eins og í samfélaginu öllu.
27.07.2021
Menntanefnd LH stendur fyrir rafrænni menntaráðstefnu í haust með heimsþekktum kennurum.
Stefnt er að 5 kvöldum í október og byrjun nóvember á þessu ári og verður einn fyrirlesari í senn fyrstu 4 kvöldin, fimmta kvöldið verður svo samantekt og pallborðsumræður. Fyrsta dagsetning er 5.október og svo vikulega út þann mánuð. Hér er kynning á fyrsta kennara ráðstefnunnar.
24.07.2021
Hraðvaxandi fjölgun COVID-19 smita í samfélaginu undanfarna daga hefur nú haft þær afleiðingar að stjórnvöld hafa neyðst til að herða sóttvarnir og setja á ný takmarkanir á samkomur
21.07.2021
Frábæru Íslandsmóti barna og unglinga lokið.
14.07.2021
Fjórir heiðursmenn voru sæmdir gullmerki LH á Fjórðungsmóti Vesturlands 2021.
13.07.2021
Þátttökurétt á móti landsliðsnefndar "Allra sterkustu á Íslandi" sem haldið verður aðra helgina í águst, eiga efstu pör í hverri grein á stöðulista ársins 2021 í opnum flokki og ungmennaflokki
Fjöldi í hverri grein er 15 í fullorðinsflokki og 10 í ungmennaflokki og má hver knapi aðeins keppa á einum hesti í hverri grein, þó hann eigi tvo hesta á stöðulistanum og öðlast þá næstu pör á listanum þátttökurétt. Í 150 og 250 m. skeiði eiga 6 fljótustu pörin í hvorum flokki þátttökurétt. Athugið að stöðulistinn getur tekið breytingum þegar árangur af þeim íþróttamótum sem framundan eru fram að Allra sterkustu er kominn inn.