Landsliðið á HM í Berlín

Landslið Íslands í hestaíþróttum mun halda út til Þýskalands í byrjun ágúst til að taka þar þátt í heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Berlín. Mótið hefst 4. ágúst og stendur til þess 11.

HM2013: Landsliðið kynnt í dag

Landslið Íslands í hestaíþróttum verður kynnt miðvikudaginn 10. júlí kl. 16:00 í verslun Líflands, Lynghálsi 3. Landsliðið hefur verið í mótun síðustu vikur, eða allt frá úrtökunni sem fram fór um miðjan júní og mun liðsstjórinn Hafliði Halldórsson kynna fullskipað lið á miðvikudaginn kemur.

Íslandsmót yngri flokka - skráningu lýkur 11.7

Hestamannafélagið Léttir mun halda Íslandsmót yngri flokka á Akureyri 18-21 júlí. Búið er að opna fyrir skráningar og fer hún fram á http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add og lýkur skráningu á miðnætti 11. júlí.

Skrifstofa LH lokuð vegna útfarar

Fimmtudaginn 4.júlí verður skrifstofa LH lokuð eftir kl. 13:00 vegna útfarar Ólafs E. Rafnssonar forseta ÍSÍ.

Keppnistilsögn fyrir Íslandsmót

Léttir býður öllum þeim krökkum sem hafa áhuga á að keppa á Íslandsmóti yngri flokka upp á fría tilsögn fyrir mótið mánudaginn 8. og þriðjudaginn 9. júní kl. 20:00 á Hlíðarholtsvelli.

Melgerðismelar - fundarboð

Stjórn Melgerðismela s.f. boðar til fundar á Melgerðismelum mánudaginn 08.júlí kl. 20:30.

Íslandsmót yngri flokka 2013: Orðsending til keppenda

Íslandsmót yngri flokka verður haldið á Akureyri 18. – 21. júlí. Huga þarf að mörgu áður en lagt er af stað í svona mót og því viljum við benda knöpum á að gera eftirfarandi...

Íslandsmót fullorðinna

Nú styttist í það að Íslandsmót fullorðinna í hestaíþróttum hefjist. Skráning stendur nú yfir en frestur til að skrá sig til leiks rennur út 2. júlí, eða að kvöldi þriðjudags.

Dagskrá og ráslistar Sumarsmells

Sumarsmellur Harðar hefst í dag föstudaginn 28.júní kl. 14:00 á fjórgangi meistara. Á ráslistunum má sjá að mótið verður sterkt og spennandi fram á síðustu úrslit!

Minningarsjóður Ólafs E. Rafnssonar

Ólafur Eðvarð Rafnsson forseti ÍSÍ sem varð bráðkvaddur þann 19. júní s.l. verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 4. júlí klukkan 15:00. Erfidrykkja verður haldin í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum að lokinni athöfn.