Keppnismót fatlaðra ungmenna 2011

Hestamannafélagið Hörður í samstarfi við Hestamennt kynna Keppnismót fatlaðra ungmenna 2011. Mótið verður haldið föstudaginn 27. maí 2011 kl. 17:00 í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ.

Úrslit íþróttamóts Geysis

Íþróttamót Geysis fór fram um síðastliðna helgi. Fjölmargir hestar og knapar mættu til leiks og sáust margar glæsilegar sýningar. Hér fyrir neðan má sjá úrslit mótsins.

Úrslit íþróttamóts Sörla

Glæsilegu Íþróttamóti Sörla 2011 lauk í dag, hestakostur var góður og gekk mótið framúrskarandi vel. Valdís Björk Guðmundsdóttir og Hrefna frá Dallandi voru valin glæsilegasta parið, enda áttu þær glæsilegar sýningar bæði í tölti og fjórgangi.

Samningur LM og GDLH

Landsmót ehf. og Gæðingadómara félag Landssambands hestamannafélaga (GDLH) hafa skrifað undir samstarfssamning.

Gæðingakeppni Gusts og kappreiðar

Gæðingakeppni Gusts og úrtaka félagsins fyrir Landsmót 2011 fer fram í Glaðheimum daganna 28-29 maí 2011. Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

Gæðingakeppni - yngri flokkar

Vert er að vekja athygli á því að í gæðingakeppni er keppendum í yngri flokkum heimilt að skrá til leiks og keppa á fleiri en einum hesti.

Fáksfréttir

Það verður mikið um að vera hjá Fáksfélögum í kvöld, föstudaginn 20.maí. Kl.18:00 hefst Firmakeppni Fáks. Tekið er við skráningum á fakur@fakur.is. Sjá nánar á www.fakur.is.

Miðnæturreið Ármanna

Miðnæturreið verður föstudaginn 20.maí. Lagt verður af stað frá reiðhöllinni kl. 21.00. og áætlað að hitta Kjóavallabúa við Vífilstaðavatn kl 21:15.

100.000 krónur fyrir fyrsta sætið!

Samhliða gæðingamóti/úrtöku hjá Fáki 26.-29. maí fer fram Tölt T1 World Ranking mót en þar er aldurstakmark 18 ára á árinu og eldri.

Stöðulistar fyrir LM

Á landsmótsárum er spennandi að fylgjast með stöðulistum í tölti og skeiðgreinum sem segja til um hvaða knapar og hestar vinna sér inn þátttökurétt, í þeim greinum, á Landsmóti.