17.03.2010
Viðburðurinn Hestadagar í Reykjavík verður haldinn árlega í Reykjavík frá og með mars á næsta ári en Borgarstjórn
Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gær tillögu þess efnis. Segir borgarstjórn að með þessu sé stigið
mikilvægt skref í kynningu á íslenska hestinum í vetrarbúningi.
17.03.2010
Úrtaka fyrir „Allra sterkustu“ verður haldin föstudaginn 26.mars kl.20:00 í Skautahöllinni í Laugardal.
8-10 efstu hestum í úrtöku verður boðið að taka þátt í Ístölti „Allra sterkustu“ sem fer fram 3.apríl. Þar
mæta til leiks glæsilegir töltarar og margir af fremstu knöpum landsins.
17.03.2010
Hér að neðan má sjá heildarúrslit úr forkeppni á Svellköldum konum sem fram fór sl. laugardag.
Minna vanar:
16.03.2010
Reglugerð um einstaklingsmerkingar búfjár tók gildi árið 2005 þar sem m.a. er kveðið á um að skylt sé að skrá og
einstaklingsmerkja öll hross eldri en 10 mánaða. Í byrjun voru hross fædd fyrir árið 2003 undanþegin merkingarskyldu en nú hefur sú
undanþága verið felld úr gildi. Hross sem fædd eru árið 2008 og síðar skulu vera örmerkt en frostmerki eru viðurkennd í eldri
hrossum, að því gefnu að þau séu læsileg.
15.03.2010
Dagur Brynjólfsson áhugaljósmyndari mætti með myndavélina í Skautahöllina á laugardaginn og tók fjöldan allan af myndum.
15.03.2010
Ístöltsmót kvenna „Svellkaldar konur“ 2010 fór fram í Skautahöllinni í Laugardal síðasta laugardag, 13.mars. Mótið
tókst í alla staði vel, undirbúningur og framkvæmd til fyrirmyndar hjá undirbúningsnefndinni sem allar störfuðu í
sjálfboðavinnu.
15.03.2010
Stjórn LH hefur tekið þá ákvörðun, eftir lýðræðislega atkvæðagreiðslu innan stjórnar LH, að landsmót
hestamanna árið 2012 verði haldið í Reykjavík. Hefur sú ákvörðun vakið upp miklar deilur meðal hestamanna og óvægin skrif
hafa birst á spjallsíðum hestamanna.
15.03.2010
Undirritaðir stjórnarmenn hestamannafélaganna Dreyra, Faxa, Geisla, Glæsis, Grana, Háfeta, Hornfirðings, Kóps, Léttfeta, Ljúfs, Loga,
Mána, Neista, Sindra, Skugga, Sleipnis, Smára, Snarfara, Snæfaxa, Stíganda, Storms, Svaða, Trausta, Þjálfa, Þráins og Þyts
mótmæla því harðlega að stjórn L.H. hrófli við því mynstri sem verið hefur við lýði varðandi staðsetningu
Landsmóta allt frá upphafi þeirra en það mynstur hefur byggst á því að mótin hafa verið haldin á landsbyggðinni og til
skiptis á norður- og suðurlandi.
15.03.2010
Stórglæsilegt ístöltsmót kvenna fór fram í Skautahöllinni í Laugardal í gær. Þar þreyttu hundrað
þáttakendur keppni og mátti sjá frábærar sýningar í öllum flokkum. Keppt var í liðakeppni og þar var bleika liðið
hlutskarpast, en dregið var í liðin af handahófi úr öllum flokkum.
15.03.2010
Æskulýðsnefnd Léttis óskar eftir krökkum sem hafa áhuga á að taka þátt í sýningunni Æskan og hesturinn sem fram
fer á Sauðárkróki 1 maí.