02.06.2010
Norðurlandamót íslenska hestsins verður haldið 4.-8.ágúst 2010 í Ypäjä í Finnlandi. Páll Bragi Hólmarsson,
liðstjóri íslenska landsliðsins, hefur valið fyrstu 3 landsliðsmennina sem keppa munu fyrir hönd Íslands á NM2010. Þeir eru:
01.06.2010
Stjórn Landssambands hestamannafélaga vill þakka þann góða samhug sem kom fram á fundi hagsmunaaðila í hestamennsku ásamt
dýralæknum og embættismönnum síðastliðinn mánudag. Þar var ákveðið að fresta Landsmóti hestamanna eins og fram hefur
komið í samþykktri tillögu og fréttatilkynningu frá fundinum.
31.05.2010
Vegna smitandi hósta í hrossum var haldinn fundur hagsmunaaðila í hestamennsku og hrossarækt ásamt yfirvöldum dýralæknamála, starfandi
dýralæknum og fulltrúum leiðbeiningaþjónustu og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Fundurinn var haldinn í
Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 31. maí 2010 og þar var eftirfarandi ályktun samþykkt.
31.05.2010
Af gefnu tilefni skal það ítrekað að Landsmót ehf. mun endurgreiða alla miða, stúkur og hjólhýsastæði sem keypt hafa verið
vegna Landsmóts 2010 sem nú er búið að fresta. Við biðjum viðskiptavini okkar hins vegar um að sýna starfsmönnum Landsmóts
biðlund þar sem ærin verkefni eru fyrir höndum að vinda ofan af mótinu í ár og fjöldi viðskiptavina er stór.
31.05.2010
Samhljóða ákvörðun var tekin á fundi hagsmunaaðila í hestamennsku og hrossarækt ásamt yfirvöldum dýralæknamála,
starfandi dýralæknum, fulltrúum leiðbeiningaþjónustu og fulltrúa sjávar- og landbúnaðarráðuneytisins vegna smitandi
hósta sem herjað hefur á hrossastofninn í landinu undanfarið.
31.05.2010
Séu einhverjir hestamenn á höfuðborgarsvæðinu svo lánsamir að vera með fullfrísk hross og hyggja á sleppitúra á
næstunni þ.e. um Hellisheiði þá eru nokkur atriði að varast. Framkvæmdum við Hellisheiðarvirkjun og Hellisheiðaræð hefur tafist
frá því sem upphaflega var áætlað. Framkvæmdum við virkjunina lýkur 2011, en við Hellisheiðaræð í ág. –
sept. 2010.
28.05.2010
Formannafundur Landssambands hestamannafélaga var haldin í dag, 28.maí, í húsakynnum ÍSÍ. Fundurinn var vel sóttur en auk formanna og
fulltrúa hestamannafélaganna sátu fundinn: stjórn LH, fyrrverandi formenn LH, formaður FHB og formaður FT. Fyrir hönd Landsmóts hestamanna ehf.
mættu: stjórn Landsmóts ehf., framkvæmdastjóri, mótsstjóri og hluti framkvæmdanefndar.
28.05.2010
Yfirlitssýning kynbótahrossa á Sörlastöðum er á morgun föstudaginn 28. maí og hefst kl. 10:00. Byrjað verður á hryssum
í flokki 7 vetra og eldri og endað á stóðhestum 7 vetra og eldri. Reiknað er með að hádegishlé verði tekið þegar
sýningum á 5 vetra hryssum er lokið, þannig að eftir hádegi verður byrjað á 4 vetra hryssum og síðan yngstu stóðhestunum.
27.05.2010
Nú liggur fyrir að smitandi hósti er ekki af völdum neinna af þeim alvarlegu veirusýkingum sem þekktar eru og leggjast á öndunafæri hrossa.
Bakterían Streptococcus zooepidemicus hefur hins vegar ræktast úr öllum sýnum sem tekin hafa verið úr hrossum með hósta og graftarkenndan hor, en
ekki úr hrossum sem eingöngu hafa verið með nefrennsli eða heilbrigð.
27.05.2010
Félag tamningamanna lýsir yfir áhyggjum vegna þeirrar stöðu sem er upp er komin varðandi smitandi kvefpest í hrossum. Þar sem ekki hefur tekist
að greina veiruna eru afleiðingar pestarinnar enn óljósar og hún virðist þrálát og erfið viðureignar.