06.02.2009
Alvarlegt slys varð á svæði Andvara þegar tveir hestar fældust á bráðabirgða reiðstíg sem liggur rétt við blokk sem
verið er að byggja í svokölluðum Tröllakór. Rusli var hent niður af svölum byggingarinnar, hestarnir fældust og báðir mennirnar
slösuðust.
05.02.2009
Fyrsta mót Meistaradeildar VÍS fór fram fimmtudagskvöldið 5. febrúar. Keppt var í Smala, sem er eins og nafnið ber með sér í
ætt við forna íslenska reiðmennsku. Hestur og knapi þurfa að sýna liðleika, snerpu og hraða.
05.02.2009
Opna Bautamótið í tölti verður haldið í Skautahöllinni á Akureyri 21. febrúar. Sjá nánar auglýsingu.
05.02.2009
Gámaþjónustan í Hafnarfirði býður nú hestamönnum í Sörla að taka við taði frá þeim á svæði
fyrirtækisins við Berghellu í Hafnarafirði. Þetta er umtalsverður sparnaður fyrir Sörlafélaga, sem hafa sjálfir þurft að bera
kostnað af að aka taðinu í Krísuvík eða Áfsnes.
05.02.2009
Flest hrossin sem fóru niður um ís á Tjörninni í Reykjavík voru aðeins þrjár til fimm mínutur í vökinni. Ekki tuttugu
mínútur til hálftíma eins og sagt var í fréttum. Hrossið sem var síðast upp úr var átta mínútur í
vatninu.
04.02.2009
Á morgun, fimmtudag, fer fram fyrsta mótið í Meistaradeild VÍS 2009. Fyrsta grein mótsins er Smali og hefst keppni klukkan 19:30 í
Ölfushöllinni.
Enn er hægt að tryggja sér ársmiða í Líflandi, Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi. Verðið á ársmiða er kr 5.000,- en
aðgangseyrir á hvert mót er kr 1.500,-
04.02.2009
Greinilegt er að ný reiðhöll Léttismanna á Akureyri hefur gjörbreytt hestamennskunni á svæðinu. Alla vega hvað vetrarstarfið
varðar. Fjölbreytt námskeið eru nú í boði og hver sýningin innanhúss rekur aðra.
04.02.2009
Árlegir kynbótadómar og folaldasýning verður haldin í Andvara laugardaginn 7. febrúar. Kristinn Hugason, fyrrverandi
hrossaræktarráðunautur, mun að venju dæma hrossin og gefa leiðbeiningar.
03.02.2009
Knapar og hestar í Meistaradeild VÍS fengu heltur betur kalt bað við setningu deildarinnar, sem fram fór á Tjörninni í Reykjavík. Tíu til
fimmtán hestar lentu í vök þegar ísinn brotnaði undan þeim.
03.02.2009
Helluskeifur hleyptu heimdraganum fyrir ári síðan og er fyrirtækið nú með aðsetur í Stykkishólmi. Eigendur eru Agnar Jónasson og Svala
Jónsdóttir. Hellurskeifur bjóða nú skaflaskeifur á hagstæðu verði.