21.05.2010
Í dag fór fram fundur í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu með öllum hagsmunaaðilum innan hestamennskunnar. Tilgangur
fundarins var að fá heildarsýn yfir stöðu mála vegna hóstapestarinnar svonefndu. Síðast liðinn mánudag skipaði Halldór
Runólfsson yfirdýralæknir nefnd, en í henni eiga sæti Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma,
Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur og Sveinn Ólason dýralæknir. Þau hafa verið að safna öllum tiltækum upplýsingum um
veikina og kynnti Sigríður helstu niðurstöður á rannsóknum þeirra og veitti ráðgjöf í ljósi þeirra.
21.05.2010
Enn er allt í óvissu hvort Landsmóti verði frestað eða ekki. Búnaðarsambandið hefur því ákveðið að framlengja
skráningarfrestinn á kynbótasýninguna á Gaddstaðaflötum til þriðjudagsins 25. maí. Vonandi verður þá búið
að taka ákvörðun um hvort og hvenær Landsmót verður. Hollaröðun mun að öllu óbreyttu ekki verða birt fyrr en föstudaginn 28.
maí. Röðin verður birt á heimasíðu Búnaðarsambands Suðurlands www.bssl.is.
20.05.2010
Ágætu hestamenn! Það hefur ekki farið framhjá neinum sem stunda hestamennsku að sú flensa sem gengur í hrossastofninum hefur þegar haft
slæm áhrif á hestamennskuna á allan máta. Úrtökum og mótum hefur verið frestað á flestum stöðum og fæst þeirra
dagsett á ný. Því er ljóst að mikið verður um mót og úrtökur þegar líður fram í júní og
gæti orðið erfitt að finna dómara á öll mót ef þau verða mjög þétt.
20.05.2010
Léttir býður fulltrúum framboðsflokkanna á fund í Top Reiter höllinni, miðvikudaginn 19. maí kl. 20:00. Fulltrúar allra
framboðsflokkanna eru velkomnir á fundinn. Hestamenn fjölmennum á fundinn og sýnum málefnum okkar áhuga.
19.05.2010
Hollaröðun á héraðssýningu kynbótahrossa á Sörlastöðum í Hafnarfirði dagan 25.- 27. maí 2010. Knapar að fylgjast
vel með breytingum sem kunna að verða á hollaröðuninni vegna forfalla. Á þriðjudaginn 25. maí hefjast dómar kl. 12.30 og verður ein
dómnefnd við störf þann dag. Miðvikudag og fimmtudag (26. og 27. maí) hefjast dómstörf kl. 8.00 og þá verða tvær dómnefndir
að störfum. Yfirlitssýning verður svo föstudaginn 28. maí n.k. Tímsetning nánar auglýst síðar.
19.05.2010
Fræðslufundur um kvefpestina sem geisar í hrossastofninum þessa dagana verður á fimmtudagskvöldið kl. 20:30 í Reiðhöllinni.
Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma mun og Vilhjálmur Svansson, dýralæknir munu halda erindi og svara fyrirspurnum
um veikina.
Staður: Reiðhöllin í Víðidal
Tími: Fimmtudaginn 20. maí kl. 20.30
Frítt inn og allir velkomnir – veitingar seldar á staðnum.
Í dag (miðvikudag) er Hreinsunardagur Fáks og hefst hann kl. 17:30. Fólk er hvatt til að koma og hjálpa okkur að gera svæðið snyrtilegt í
kringum okkur. Ruslapokar verða afhentir og gámar verða staðsettir við félagsheimilið og upp í Víðidal.
Hestamannafélagið Fákur.
19.05.2010
Gangmyllan á Syðri-Gegnishólum hefur gefið út bækling til kynningar á stóðhestum búsins. Bæklingurinn sem er 12 síður
litprentaður kynnir tíu stóðhesta úr ræktun þeirra Bergs Jónssonar og Olil Amble sem búa á Syðri-Gegnishólum.
18.05.2010
FEIF Youth Cup er haldið annað hvert ár og að þessu sinni verður mótið haldið í Kalø í Danmörku 10.-18. júlí 2010.
Íslenski hesturinn, liðsheild og alþjóðleg menning eru einkennisorð mótsins. Þar gefst unglingum og ungmennum á aldrinum 14-17 ára
víðsvegar að úr heiminum kostur á að koma saman og keppa í hestaíþróttum.
18.05.2010
Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ og fyrrum formaður Körfuknattleikssambands Íslands, var nú á dögunum kjörinn nýr forseti FIBA Europe.
FIBA Europe, Körfuknattleikssamband Evrópu, er eitt af stærstu íþróttasamböndum í heiminum og er óhætt að fullyrða að
þetta embætti er hið stærsta sem íslenskur forystumaður innan íþróttahreyfingarinnar hefur gengt á erlendum vettvangi.
17.05.2010
,,Fólk þarf að sýna þessu ástandi skilning, framkvæmdaraðilar, mótshaldarar og allir þeir sem koma að mótahaldi gera sitt besta
hverju sinni í þessari óvenjulegu stöðu sem nú er“ segir Sigurður Ævarsson mótsstjóri Landsmóts.